Ert þú að missa af skattfrjálsum ökutækjastyrk?
Hingað til þá höfum við handskrifað kílómetrastöðu ef við notum bílinn okkar í þágu vinnuveitanda. Maður skráir kílómetrastöðuna í upphafi ferðar og við lok hverrar ferðar og skrifar svo skýringu á blaðið, maður hefur svona 3cm til að útskýra ferðina.
En viljið þið giska á hversu margir nenna þessu? Já rétt – miklu færri en eiga rétt á ökutækjastyrk.
Af því að þetta er ekki einfalt og þægilegt þá einhvern vegin hverfur vitundin fyrir því að þarna liggja tugir jafnvel hundruðir þúsunda af skattfrjálsum ökutækjastyrk sem þið eigið rétt á að fá frá vinnuveitanda gegn því að skila Akstursdagbók.
Fyrstu 1.000 km sem þið akið gefa 144.000 krónur. Ef þið keyrið 5.000km á ári fyrir vinnuveitandann ykkar þá eigið þið rétt á 710.000 kr í skattfrjálsan ökutækjastyrk.
Ökutækjastyrknum er svo alveg sama hvort þetta er allt gert á einum mánuði eða öllu árinu, styrkurinn er skattfrjáls og ykkar að nýta hann sem best.
Ökutækjastyrkur er kjarasamningsbundinn styrkur, þannig að ef þú notar bíl í þinni eigu í þágu vinnuveitanda þá áttu svona 99% örugglega rétt á að fá skattlausan ökutækjastyrk á móti þeim kílómetrum sem þú ekur. Hverjir hér nota bílinn sinn eitthvað á hverju ári fyrir vinnuveitandann?
Ert þú kannski verktaki?
Ef þú ert verktaki, keyrir á einkabílnum í vinnunni og greiðir sjálfum þér fastan ökutækjastyrk, vissir þú að þú þarft að eiga gögn á bak við réttmæti þessa styrks? Skatturinn hefur rétt á að kalla eftir gögnum allt að 6 ár aftur í tímann og ef þú skilar þeim ekki þá áttu von á hárri sekt.
Skreppa appið heldur utan um þessi gögn fyrir þig aftur í tímann og þú getur sent skýrslu beint úr appinu.
Einnig þá má líka velta fyrir sér hvort þú sért að greiða þér nógu háan ökutækjastyrk.
Skreppa getur mælt þetta fyrir þig og þá getur þú séð nákvæmlega hvað þú hefur rétt á að greiða þér skattfrjálst.
Gott reikningsdæmi:
Þú keyrir á fund frá Borgartúni til Keflavíkur og til baka. 49 km aðra leið og þá fram og til baka 98 km. 98*144 kr gera samtals 14.112 kr sem þú getur greitt þér skattfrjálst (Þú þarft að aka 103 km til að greiða árgjaldið af Skreppa appinu). Þetta er einn fundur og allir aðrir fundir eða ferðir mánaðarins eftir.
Þægilegt viðmót
Forsíðan sýnir þér allar ferðir sem eru að safnast upp en hérna var ég að keyra fyrir Fast & Furious ehf og eins og sést eru þetta 18 ferðir, 262km og ökutækjastyrkur uppá 49.573kr þann 08. febrúar, það eru rétt um 400.000 kr á ári en mánuðurinn er auðvitað bara rétt byrjaður.




Hvað gerir Skreppa fyrir þig?
Sjálfvirk akstursskráning, sparar tíma
Auðveldar þér að sækja skattfrjálsan ökutækjastyrk
Geymir gögnin aftur í tímann
Einfaldar útreikninga
Auðvelt fyrir bókhald að móttaka
Býr til ársskýrslur sem þú getur notað við útfyllingu skattframtals


Það er hægt að...
Uppfæra margar ferðir í einu
Hafa fleiri en eitt ökutæki sem þú ekur fyrir
Hafa fleiri en eitt ökutæki skráð
Slökkva á sjálfvirkri mælingu
Tímastilla mælinu eftir vinnutíma þínum
Sía út það sem þú vilt sjá hverju sinni
Lögmæti
hafðu samband
skreppa@skreppa.is
+354-420-4020
© Endurgjald ehf, Kt 640725-0950